Betri vefur. Minni handavinna.
Vefsíður, innri kerfi, AI agents og tengingar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, og lagfæringar sem taka einn dag. Fast verð, eitthvað nothæft í hverri viku, og þú átt lausnina.
Tillaga
Hakaðu við eitt eða fleira og þá sérðu hvað ég myndi smíða, hvað það tekur langan tíma og hvað það kostar.
Það sem ég smíða
Fjórar tegundir verka, og ein fyrir þegar þú veist ekki enn hvað þarf.
Vefsíður
Hraður vefur á íslensku og ensku sem þú uppfærir sjálf/ur.
Þú átt kóðann, hönnunina og lénið.
2–4 vikurfrá 199.900 kr.
Kerfi
Excel-skjalið sem varð of stórt, orðið að almennilegu kerfi með réttindum.
Þú átt kóðann, gögnin og hýsinguna.
4–8 vikurfrá 399.900 kr.
AI agents
Sér um endurtekna vinnu, eins og reikninga og fyrirspurnir, og spyr þig þegar hann er ekki viss.
Þú átt kóðann, fyrirmælin og prófin.
2–6 vikurfrá 299.900 kr.
Tengingar
Kerfi sem töluðu ekki saman senda nú gögn sjálfkrafa á réttan stað.
Þú átt kóðann og skjölunina.
1–3 vikurfrá 249.900 kr.
Óskilgreint
Eitthvað er hægt eða pirrandi en þú getur ekki alveg sagt hvað. Við byrjum á viku kortlagningu: hver gerir hvað og hvert tíminn fer.
Þú átt kortið, líka ef einhver annar smíðar.
1 vika289.900 kr.
Verðin eru viðmið, ekki verðskrá. Hvert verk fær fast verð áður en ég byrja, og það er alltaf hægt að semja: minna umfang, verkið í áföngum eða greiðslum dreift.
Öll verð án vsk. Eftir afhendingu er valfrjálst að ég hýsi og haldi við fyrir 30.000 kr. á mánuði.
Ekkert er of lítið.
Ef það leysir vandamál er það þess virði að smíða. Sum bestu verkin taka einn eða tvo daga. Til dæmis:
- Áminning sem fer sjálf út þegar reikningur er kominn á eindaga.
- Eyðublað á vefnum sem skilar sér beint í skjalið sem þú notar nú þegar.
- Samantekt vikunnar í pósthólfinu á mánudagsmorgni, án þess að neinn taki hana saman.
Lítil verk fá líka fast verð, í hlutfalli við stærðina.
Nýleg verk
Raunveruleg verk, með tölunni sem skipti máli. Lengri sögur eru á einargudni.com.
Verkbeiðni verður til úr mynd af verkstað, í stað þess að vera skrifuð frá grunni. Öll sagan: AI aðstoðarmaður inni í Gigover
22/22
prófdæmi sem þurfa að standast áður en ný útgáfa fer í loftið
Hann uppfærir síðuna sjálfur, án þess að bíða eftir forritara. Öll sagan: Vefur og áskriftarapp fyrir þjálfara
0 KB
af JavaScript á forsíðunni, svo hún opnast strax
Svona vinn ég
Fast verð áður en ég byrja. Engir tímar sem tikka.
Ókeypis
Spjall
Þú lýsir vandanum. Ég segi þér hreinskilnislega hvort og hvernig ég get hjálpað.
Skriflegt
Fast verð
Umfang og verð á blaði, sem við semjum um saman. Óljós vandamál eru kortlögð fyrst.
Vikulega
Smíði
Eitthvað nýtt til að smella á og gera athugasemdir við í hverri viku.
Þitt
Afhending
Kóði, aðgangar og skjölun á þínu nafni. Ekkert læst inni hjá mér.
Segðu mér hvað tefur.
Ein eða tvær setningar duga. Ég svara innan eins vinnudags og segi þér hvaða leið ég myndi fara, eða hvort einhver annar henti betur.
eggo@eggo.is