Fara í efni
English

Nýleg verk

Raunveruleg verk, með tölunni sem skipti máli. Lengri sögur eru á einargudni.com.

  1. 22/22

    prófdæmi sem þurfa að standast áður en ný útgáfa fer í loftið

    AI aðstoðarmaður inni í Gigover

    Gigover, AI agents

    Vandi
    Gigover vildi aðstoðarmann inni í kerfinu sínu. Upphaflega planið kallaði á breytingar á bakenda sem enginn hafði tíma í.
    Smíðað
    Aðstoðarmaður sem svarar spurningum um kerfið, ber saman tilboð og skrifar drög að verkbeiðnum út frá myndum af verkstað. Kostnaður er takmarkaður á hvern notanda.
    Tækni
    Gemini · Firebase
    Niðurstaða
    Verkbeiðni verður til úr mynd af verkstað, í stað þess að vera skrifuð frá grunni.
  2. 0 KB

    af JavaScript á forsíðunni, svo hún opnast strax

    Vefur og áskriftarapp fyrir þjálfara

    Sterkir pabbar, Vefsíður

    Vandi
    Þjálfari sem þjálfar pabba þurfti síðu sem breytir heimsóknum í kynningarspjall, og lokað svæði fyrir áskrifendur.
    Smíðað
    Forsíða sem hann uppfærir sjálfur í vefumsjón, og app með æfingaplani, næringarmarkmiðum og aðstoðarmanni sem svarar aðeins út frá hans efni.
    Tækni
    Astro · Sanity · React Router
    Niðurstaða
    Hann uppfærir síðuna sjálfur, án þess að bíða eftir forritara.
  3. −42%

    minni aðalpakki, svo kerfið opnast hraðar

    Áreiðanlegra kerfi fyrir byggingargeirann

    Gigover, Kerfi

    Vandi
    Bakendinn faldi villur inni í svörum sem litu út fyrir að hafa tekist. Bjóðandi sá „hlaðið upp“ en verkkaupinn fékk ekkert.
    Smíðað
    Ein sameiginleg villumeðhöndlun fyrir allar 55 aðgerðir sem breyta gögnum, án þess að snerta bakendann. Og léttari vefur.
    Tækni
    React · TanStack Query · Zod
    Niðurstaða
    Upphleðsla sem mistekst segir það núna, í stað þess að sýnast hafa tekist.
  4. 14

    tengingar við 11 kerfi

    Gögn úr ellefu öppum í einn gagnagrunn

    eigið verkefni, Tengingar

    Vandi
    Svefn, æfingar, fundir, verkefni og kóði lágu hvert í sínu appi. Ekkert þeirra gat svarað spurningu þvert á hin.
    Smíðað
    Safnari sem samstillir allt í einn SQLite-gagnagrunn sem agents lesa um MCP og öpp um API. Agents fá aðeins lesaðgang.
    Tækni
    Bun · SQLite · MCP · Workers
    Niðurstaða
    Ein spurning fær svar þvert á ellefu öpp, í stað þess að fletta í hverju fyrir sig.
  5. 5 villur

    fundust þegar kortið var skrifað, áður en nokkurt próf var til

    Agent sem sannar að breytingin virki

    Maul · innanhúss, AI agents

    Vandi
    Agents sögðu að breyting virkaði. Prófin stóðust, en enginn hafði opnað síðuna.
    Smíðað
    Tól sem lætur agent nota innra kerfi Maul í vafra eins og manneskja og skila sönnunum, ásamt korti af öllum aðgerðum kerfisins. Unnið í teymi.
    Tækni
    Playwright · TypeScript
    Niðurstaða
    Breyting telst ekki tilbúin fyrr en agent hefur sýnt hana virka í vafranum.

Hvað tefur hjá þér?

Ein eða tvær setningar duga. Ég svara innan eins vinnudags með leið og fast verð.

Hafa samband