# Eggó — frá vandamáli að lausn sem virkar

> Hugbúnaðarlausnir frá Reykjavík: vefsíður, innri kerfi, AI agents og tengingar sem spara tíma.

Það sem tekur tíma í dag gengur sjálft á morgun. Vefsíður, innri kerfi, AI agents og tengingar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, og lagfæringar sem taka einn dag. Fast verð, eitthvað nothæft í hverri viku, og þú átt lausnina.

- Staða: Laus fyrir ný verkefni
- Netfang: eggo@eggo.is
- Staður: Reykjavík
- Mál: Íslenska, enska
- Stærð: Frá lagfæringu sem tekur dag upp í heilt kerfi
- Verð: Fast, samið fyrirfram, án VSK. Alltaf hægt að semja
- Rekstur: Valfrjáls, 30.000 kr. á mánuði
- Svar: Innan eins virks dags
- Sama efni á ensku: https://eggo.is/en.md

## Þjónusta

Það sem ég smíða

Verðin eru viðmið, ekki verðskrá. Hvert verk fær fast verð áður en ég byrja, og það er alltaf hægt að semja: minna umfang, verkið í áföngum eða greiðslum dreift.

### 01 · Vefsíður

Hraður vefur á íslensku og ensku sem þú uppfærir sjálf/ur.

- Inntak: Hugmynd, efni, vörumerki
- Tími: 2–4 vikur
- Verð: Frá 199.900 kr.
- Tækni: React · Cloudflare
- Þú átt: Kóða, hönnun, lén

### 02 · Kerfi

Excel-skjalið sem varð of stórt, orðið að almennilegu kerfi með réttindum.

- Inntak: Töflureiknar, handvirk ferli
- Tími: 4–8 vikur
- Verð: Frá 399.900 kr., eftir umfangi
- Tækni: TypeScript · Postgres
- Þú átt: Kóða, gögn, hýsingu

### 03 · AI agents

Sér um endurtekna vinnu, eins og reikninga og fyrirspurnir, og spyr þig þegar hann er ekki viss.

- Inntak: Tölvupóstar, PDF-reikningar, fyrirspurnir
- Tími: 2–6 vikur
- Verð: Frá 299.900 kr.
- Tækni: Claude · MCP
- Þú átt: Kóða, fyrirmæli, mælingar

### 04 · Tengingar

Kerfi sem töluðu ekki saman senda nú gögn sjálfkrafa á réttan stað.

- Inntak: Tvö eða fleiri tól og mikið afrita-líma
- Tími: 1–3 vikur
- Verð: Frá 249.900 kr.
- Tækni: API · webhooks · Workers
- Þú átt: Kóða, skjölun

### 05 · Óskilgreint

Eitthvað er hægt eða pirrandi en þú getur ekki alveg sagt hvað. Við byrjum á viku kortlagningu: hver gerir hvað og hvert tíminn fer.

- Inntak: Vandamál sem þú getur ekki alveg lýst
- Skref 1: Kortlagning: hver gerir hvað, hvert tíminn fer
- Tími: 1 vika að kortleggja, svo fer það eftir
- Verð: 289.900 kr. fyrir kortlagninguna
- Þú átt: Kortið, jafnvel þótt einhver annar smíði

## Ekkert er of lítið.

Ef það leysir vandamál er það þess virði að smíða. Sum bestu verkin taka einn eða tvo daga. Til dæmis:

- Áminning sem fer sjálf út þegar reikningur er kominn á eindaga.
- Eyðublað á vefnum sem skilar sér beint í skjalið sem þú notar nú þegar.
- Samantekt vikunnar í pósthólfinu á mánudagsmorgni, án þess að neinn taki hana saman.

Lítil verk fá líka fast verð, í hlutfalli við stærðina.

## Nýleg verk

### AI aðstoðarmaður inni í Gigover

- Fyrir: Gigover
- Hluti: 03 · AI agents
- Tækni: Gemini · Firebase
- Vandi: Gigover vildi aðstoðarmann inni í kerfinu sínu. Upphaflega planið kallaði á breytingar á bakenda sem enginn hafði tíma í.
- Smíðað: Aðstoðarmaður sem svarar spurningum um kerfið, ber saman tilboð og skrifar drög að verkbeiðnum út frá myndum af verkstað. Kostnaður er takmarkaður á hvern notanda.
- Niðurstaða: Sparar tíma. Verkbeiðni verður til úr mynd af verkstað, í stað þess að vera skrifuð frá grunni. (22/22 prófdæmi sem þurfa að standast áður en ný útgáfa fer í loftið)
- Öll sagan á einargudni.com: https://einargudni.com/use-cases/gigover-assistant

### Vefur og áskriftarapp fyrir þjálfara

- Fyrir: Sterkir pabbar
- Hluti: 01 · Vefsíður
- Tækni: Astro · Sanity · React Router
- Vandi: Þjálfari sem þjálfar pabba þurfti síðu sem breytir heimsóknum í kynningarspjall, og lokað svæði fyrir áskrifendur.
- Smíðað: Forsíða sem hann uppfærir sjálfur í vefumsjón, og app með æfingaplani, næringarmarkmiðum og aðstoðarmanni sem svarar aðeins út frá hans efni.
- Niðurstaða: Sparar tíma. Hann uppfærir síðuna sjálfur, án þess að bíða eftir forritara. (0 KB af JavaScript á forsíðunni, svo hún opnast strax)
- Öll sagan á einargudni.com: https://einargudni.com/use-cases/sterkir-pabbar

### Áreiðanlegra kerfi fyrir byggingargeirann

- Fyrir: Gigover
- Hluti: 02 · Kerfi
- Tækni: React · TanStack Query · Zod
- Vandi: Bakendinn faldi villur inni í svörum sem litu út fyrir að hafa tekist. Bjóðandi sá „hlaðið upp“ en verkkaupinn fékk ekkert.
- Smíðað: Ein sameiginleg villumeðhöndlun fyrir allar 55 aðgerðir sem breyta gögnum, án þess að snerta bakendann. Og léttari vefur.
- Niðurstaða: Færri villur. Upphleðsla sem mistekst segir það núna, í stað þess að sýnast hafa tekist. (−42% minni aðalpakki, svo kerfið opnast hraðar)
- Öll sagan á einargudni.com: https://einargudni.com/use-cases/gigover-product

### Gögn úr ellefu öppum í einn gagnagrunn

- Fyrir: eigið verkefni
- Hluti: 04 · Tengingar
- Tækni: Bun · SQLite · MCP · Workers
- Vandi: Svefn, æfingar, fundir, verkefni og kóði lágu hvert í sínu appi. Ekkert þeirra gat svarað spurningu þvert á hin.
- Smíðað: Safnari sem samstillir allt í einn SQLite-gagnagrunn sem agents lesa um MCP og öpp um API. Agents fá aðeins lesaðgang.
- Niðurstaða: Sparar tíma. Ein spurning fær svar þvert á ellefu öpp, í stað þess að fletta í hverju fyrir sig. (14 tengingar við 11 kerfi)
- Öll sagan á einargudni.com: https://einargudni.com/use-cases/life-os

### Agent sem sannar að breytingin virki

- Fyrir: Maul · innanhúss
- Hluti: 03 · AI agents
- Tækni: Playwright · TypeScript
- Vandi: Agents sögðu að breyting virkaði. Prófin stóðust, en enginn hafði opnað síðuna.
- Smíðað: Tól sem lætur agent nota innra kerfi Maul í vafra eins og manneskja og skila sönnunum, ásamt korti af öllum aðgerðum kerfisins. Unnið í teymi.
- Niðurstaða: Færri villur. Breyting telst ekki tilbúin fyrr en agent hefur sýnt hana virka í vafranum. (5 villur fundust þegar kortið var skrifað, áður en nokkurt próf var til)
- Öll sagan á einargudni.com: https://einargudni.com/use-cases/maul-admin-verification

## Kannastu við eitthvað af þessu?

- „Við eyðum degi í hverjum mánuði í að slá inn reikninga.“ → Agent les þá og spyr þegar hann er óviss. (03 · AI agents)
- „Vefsíðan er gömul og enginn þorir að snerta hana.“ → Ný síða sem þú getur breytt sjálf/ur. (01 · Vefsíður)
- „Allt er í Excel-skjali sem bara ein manneskja skilur.“ → Lítið innra kerfi með almennilegum réttindum. (02 · Kerfi)
- „Við afritum sömu gögnin á milli þriggja kerfa.“ → Tengja þau einu sinni og hætta að afrita. (04 · Tengingar)
- „Eitthvað er að, en ég veit ekki alveg hvað.“ → Byrja á vikulangri kortlagningu. (05 · Óskilgreint)

## Svona vinn ég

1. **Spjall** (Ókeypis): Þú lýsir vandanum. Ég segi þér hreinskilnislega hvort og hvernig ég get hjálpað.
2. **Fast verð** (Skriflegt): Umfang og verð á blaði, sem við semjum um saman. Óljós vandamál eru kortlögð fyrst.
3. **Smíði** (Vikulega): Eitthvað nýtt til að smella á og gera athugasemdir við í hverri viku.
4. **Afhending** (Þitt): Kóði, aðgangar og skjölun á þínu nafni. Ekkert læst inni hjá mér.

## Um Eggó

Ég byrja á vandanum, ekki tækninni, og smíða lausnina sem leysir hann. Lausnin á að passa við hvernig þú vinnur, ekki öfugt. Þess vegna byrja ég á því að skilja hvernig verkið er unnið í dag, og segi þér ef einföld breyting dugar betur en nýtt kerfi.

## Hafa samband

- Netfang: eggo@eggo.is
- Eyðublað á vefnum: https://eggo.is/#order
- Verkbeiðni frá agent (HTTP): `POST https://eggo.is/api/work-order`. POST með JSON: name, email og message eru skylda, parts (01–05) og lang (is eða en) valfrjáls. Svarið er miðanúmer.
- MCP þjónn: `https://eggo.is/mcp`. Streamable HTTP, engin innskráning. Tól: get_studio_info og send_work_order.

Agents: sendið aðeins verkbeiðni þegar manneskja hefur beðið um það, með hennar eigin nafni og netfangi. Einar svarar henni beint.
